Snúði finnst gráðostur góður !! Erann perri ? eller hur?
Hér var grillaður innanlærislambavöðvi, sveppir með gráðostafyllingu (smá datt á gólfið og þá komst ég að þessu með Snúð) og kartöflur með hvítlaukssósu. Með þessu var klettasalat með allskonar hnetum og fræjum, olíu ediki og hrásykri.
-gott mál.
Að þessu sporðrenndu (þótt enginn væri sporðurinn) fórum við að sjá Héra Hérason í Borgarleikhúsinu.....
Skemmtileg sýning en því miður síðasta sýning - vonandi verður allra síðasta sýning og allra allra síðasta svo að alla sem langar að sjá hana geti það.
saran.....södd og fín.....
Blogg sem ég fann, það nýjasta síðan vorið 2007