Blogg sem ég fann, það nýjasta síðan vorið 2007

10.2.06

Brestum í bros !



Originally uploaded by sara johanna.
Fékk þessa áskorun senda í tölvupósti og læt hana flakka hér :
Ég gerði merkilega uppgötvun í dag. Ég uppgötvaði að bros er jafnsmitandi
og flensa.
Það brosti til mín bláókunnugur maður og ég brosti á móti og hélt svo bara áfram að brosa.
Ég labbaði fyrir næsta horn þar sem ég mætti öðrum ókunnugum manni.
Þegar hann sá mig brosa, brosti hann á móti og gekk svo brosandi í burtu.
Þá laust niður hjá mér þessari staðreynd, ég hafði smitað hann.
Guð veit hvað hann hitti marga og smitaði .
Ég fór að hugsa um þetta bros og skildi þá hversu mikils virði það er.
Eitt lítið bros eins og mitt, gæti breiðst út um heimsbyggðina.
Svo ef þú finnur að þú ert að bresta í bros, ekki halda aftur af því. Komum af stað faraldri sem fyrst, stefnan er að smita allann heiminn.
BROSTU